Neðangreindir skilmálar gilda fyrir vefverslun Kökur og konfekts. Við hvetjum þig til að kynna þér þá vandlega áður en þú pantar vörur á https://kokurogkonfekt.is.

Kökur og konfekt áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara. Athugið að öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Pantanir gegnum https://kokurogkonfekt.is er hægt að sækja eða fá sent. Hægt er að fá sent með Dropp eða Póstinum og er gjaldið samkvæmt verðskrá þeirra.

Við mælum með að pantanir berist að minnsta kosti 1-2 dögum fyrir afhendingu en hægt er að óska eftir afhendingu fyrr eða seinna samkvæmt samkomulagi. Óskir þú eftir að fá pöntunina senda veltur afhendingardagur á sendingartíma þess aðila sem er valinn.

Kökur og konfekt leggur mikið upp úr gæðum á vörunum sínum. Einungis gæða hráefni eru notað við framleiðsluna okkar.  Ef viðskiptavinir finna einhvern annmarka á pöntuninni viljum við endilega fá að vita sem fyrst. Best að senda athugasemdir á kokurogkonfekt@kokurogkonfekt.is.

Þar sem vörurnar okkar eru að öllu jöfnu sérpantanir fyrir viðskiptavini er ekki er hægt að skila þeim. Hins vegar ef varan stenst ekki gæða kröfur eða væntingum viðskiptavina leggjum við okkur fram við að leysa úr þeim málum á farsælan veg.

Mosfellsbær, 11.11.2022